Sagnabrot Helga í Hólum # 26875
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Sagnabrot Helga í Hólum. Helgi Ívarsson í Hólum í Stokkseyrarhreppi segir frá.
Bókin Sagnabrot Helga í Hólum geymir úrval af skrifum fræðimannsins og bóndans Helga Ívarssonar frá Hólum í Stokkseyrarhreppi (1929-2009). Hér að finna greinar um þjóðfræði og sögu, sagnir af fátækt fyrri alda, kvenskörungum og höfðingjum, brot úr byggðasögu, ástarsögu frá gamalli tíð og frásögn af innreið útvarpsins í menningarlíf Flóamanna, svo fátt eitt sé talið. Helgi var barn tveggja tíma og þekkti af eigin raun margt í ævafornum vinnubrögðum og þjóðlífssiðum. Hann ber hér saman lífshætti 21. aldarinnar og þess tíma sem hann sjálfur fékk innsýn í hjá gömlu fólki í Flóanum snemma á 20. öld. Í skrifum sínum tekst höfundi snilldarlega að tvinna ritaðar heimildir saman við munnlega geymd hins aldna sagnaþular. Aftast í riti þessu er skrá yfir ritstörf Helga Ívarssonar og bókinni fylgir einnig vönduð nafnaskrá.