Samtíðarsögur - The Contemporary Sagas # 36315
- Regular
- 4.900 kr
- Sale
- 4.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Samtíðarsögur - The Contemporary Sagas. Níunda Alþjóðlega fornsagnaþingið. Forprent I-II.
Alþjóðlegu fornsagnaþingin eða International Saga Conference eru ráðstefnur eða þing um íslenskar og norrænar fornbókmenntir og skyld efni, sem haldnar eru á þriggja ára fresti.
Frumkvæðið að fornsagnaþingunum átti Hermann Pálsson prófessor í Edinborg, og skipulagði hann fyrsta þingið sem haldið var þar árið 1971. Það næsta var haldið í Reykjavík tveimur árum síðar, en síðan hafa þingin verið haldin á þriggja ára fresti. Oftast er tekið fyrir eitthvert ákveðið svið fræðanna og sérstaklega fjallað um það. Fornsagnaþingin eru bæði fræðilegur og félagslegur vettvangur fræðimanna í þessum greinum.
Ráðstefnurit hafa að jafnaði verið prentuð (það fyrsta er fjölritað). Í þeim var oft aðeins birt úrval fyrirlestra frá viðkomandi ráðstefnu, en aðrir birtust oft síðar, t.d. í tímaritum. Síðari árin hafa ráðstefnuritin verið svokölluð forprent, þ.e. þau eru gefin út áður en ráðstefnan eða þingið hefst og eru fyrirlestrarnir þar oft í styttri gerð.