Siðfræði # 66313

Regular
4.900 kr
Sale
4.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1990
Condition
Binding
Siðfræði. Um erfiðleika í siðferði og forsendur ákvarðana. Eftir Pál Skúlason.
Í siðfræði er tekist á við siðferðilegar spurningar á borð við: Hvað eigum við að gera? Hvers konar líf er þess virði að því sé lifað? Hvernig getum við tekist á við spillinguna í heiminum? Bókin greinist í þrjá hluta. Í fyrsta hluta vakir fyrir höfundi bókarinnar, Páli Skúlasyni rektor Háskóla Íslands og prófessor í heimspeki, að skýra nokkur frumatriði siðferðisins eins og það blasir við honum og að greina erfiðleika sem hann telur steðja að siðferði okkar. Í öðrum hluta er leitast við að skýra nokkur frumatriði siðfræðinnar og að varpa ljósi á vandkvæði hennar sem sjálfstæðrar fræðigreinar. Í þriðja hluta bókarinnar er glímt við gátu siðferðisins eins og það horfir við einstaklingi sem finnur sig knúinn til að taka ákvarðanir á siðferðilegum forsendum. Höfuðverkefnið í þriðja hluta er að leita svars við spurningunni á hvaða forsendum unnt er að taka siðferðilegar ákvarðanir.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.