Sigfús A. Sigurhjartarson # 38808

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Date
Condition
Binding
Sigfús A. Sigurhjartarson. 80 ára minning. 6.febrúar - 15.mars 1952.
Sigfús Annes Sigurhjartarson (6. febrúar 1902 – 15. mars 1952) var stjórnmálamaður og einn af helstu foringjum íslenskra sósíalista á fyrri helmingi tuttugustu aldar.


Sigfús fæddist á Urðum í Svarfaðardal og var yngst barna Sigurhjartar Jóhannessonar og seinni konu hans Friðriku Sigurðardóttur. Sigfús lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og prófi í guðfræði frá Háskóla Íslands árið 1928. Að útskrift lokinni sinnti hann kennslu við ýmsar skólastofnanir. Hann var einn af stofnendum Sósíalistaflokksins og varaformaður frá stofnun hans árið 1938. Sigfús var kjörinn bæjarfulltrúi í Reykjavík árið 1942 og sat í bæjarstjórn til dauðadags. Í vorkosningunum 1942 varð hann landskjörinn þingmaður og í haustkosningunum sama ár var hann kjörinn þingmaður Reykjavíkur og sat sem slíkur til 1949.


Sigfús skrifaði mikið í Þjóðviljann og var lengi einn af ritstjórum hans. Hann var handtekinn ásamt félögum sínum í ritstjórn blaðsins af bresku herstjórninni á stríðsárunum og sat um hríð í bresku fangelsi vegna skrifa sinna í Þjóðviljann. Ræðu- og ritgerðasafn Sigfúsar Sigurhjartarsonar, Sigurbraut fólksins, kom út að honum látnum árið 1953.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.