Sigfús Einarsson tónskáld # 59941

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1972
Condition
Binding
Sigfús Einarsson tónskáld. Sigrún Gísladóttir skráði.
Sigfús Einarsson tónskáld fæddist á Eyrarbakka 30.1. 1877. Foreldrar hans voru Einar Jónsson, kaupmaður á Eyrarbakka, og Guðrún Jónsdóttir frá Hafnarfirði.


Einar var af Bergsætt eins og frændur hans, þeir organistar, Bjarni, Jón og Ísólfur Pálssynir, synir Ísólfs, dr. Páll, tónskáld og dómorganisti, og Sigurður, organisti í Fríkirkjunni í Reykjavík, og sonur Bjarna, Friðrik, tónskáld og organisti í Hafnarfirði.


Eiginkona Sigfúsar var Valborg Inger Elisabeth Hellemann, dönsk söngkona og píanóleikari, en þau eignuðust tvö börn, Elsu Sigfúss söngkonu, og Einar Sigfússon, tónlistarkennara og fiðluleikara við sinfóníuhljómsveitina í Árósum.


Sigfús lauk stúdentsprófi frá Latínuskólanum 1898. Hann lærði söng í Kaupmannahöfn hjá Valdemar Lincke óperusöngvara og hljómfræði hjá August Enna, fékk styrk hjá Alþingi og hóf að kynna sér íslenzk þjóðlög og raddsetja þau.


Útsetningar á íslenskum þjóðlögum og hrífandi sönglög við ættjarðarljóð skáldanna voru þá veigamikill þáttur í þjóðfrelsisvakningu þessara ára en þá stemmingu má vel merkja í ýmsum lögum Sigfúsar, s.s. Þú álfu vorrar yngsta land og Rís þú unga Íslands merki.


Sigfús og Valborg giftu sig 1906 og settust þá að í Reykjavík. Þau lifðu fyrst á einkasöngkennslu, en Sigfús kenndi síðan söng við Kennraskólann frá stofnun, 1908, varð dómorganisti og söngkennari Menntaskólans 1913 og kenndi guðfræðistúdentum tón- og sálmasöng 1911-29. Auk þess stjórnaði Sigfús fjölda kóra um árabil og var skipaður söngmálastjóri fyrir Alþingishátíðina 1930. Hann stofnaði Hljómsveit Reykjavíkur, ásamt Jóni Laxdal, 1925 og stjórnaði henni fyrstu tvö árin. Þá endurskoðaði hann kirkjusöngsbók Jónasar Helgasonar og gaf út sína eigin, vann að útgáfu Sálmasöngsbókar og gaf út Íslenzkt sönglagasafn I og II svo fátt eitt sé nefnt.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.