Sigurður Þórarinsson. Mynd af manni # 75533

Regular
9.500 kr
Sale
9.500 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2021
Condition
Binding
Sigurður Þórarinsson. Mynd af manni. Eftir Sigrúnu Helgadóttur.
Ævisaga Sigurðar Þórarinssonar eftir Sigrúnu Helgadóttur segir af einum fremsta vísindamanni Íslendinga, sem hvert mannsbarn þekkti. Sigurður var nýkominn heim frá námi í jarðfræði þegar stórgos varð í Heklu 1947. Hann rannsakaði það og útskýrði og síðan öll önnur eldgos sem á eftir komu hér á landi svo lengi sem hann lifði. Sigurður hlaut alþjóðlega athygli fyrir vísindastörf sín og ekki síst fyrir að þróa sérstaka fræðigrein, öskulagafræði. Hann fékk mörg gylliboð um atvinnu erlendis en vildi hvergi búa og starfa nema á Íslandi. Hann gjörþekkti landið, eldgosin, jöklana og jarðlögin en líka sögu og menningu og glæddi áhuga og þekkingu þjóðarinnar á náttúru landsins og mikilvægi náttúruverndar. Sigurður var einnig vinsælt söngvaskáld og margir texta hans eru enn sungnir, svo sem Vorkvöld í Reykjavík eða Þórsmerkurljóð Sigrún Helgadóttir er kennari og líffræðingur, sérhæfð í náttúruvernd og umhverfismennt. Hún hefur samið kennsluefni en einnig bækur um þjóðgarða og íslenska faldbúninginn.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.