Sjeð og lifað # 86920

Regular
3,900 kr
Sale
3,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1936
Condition
Binding
Sjeð og lifað. Endurminningar Indriða Einarssonar.
Indriði Einarsson (29. apríl 1851 – 1939) var frumherji í íslenskri leikritagerð og menntaður hagfræðingur. Hann fæddist og ólst upp á Húsabakka í Skagafirði. Móðir hans Euphemia var dóttir Gísla Konráðssonar og faðir hans Einar var prestsonur frá Glaumbæ í Skagafirði. Amma Indriða í föðurætt var systir Reynistaðabræðra. Indriði var fyrsti Íslendingur sem lauk prófi í hagfræði og var endurskoðandi landsreikninganna um langt skeið, uns hann gerðist skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu. Hann var leikritaskáld og frægustu leikverk hans eru Nýjársnóttin (útg. 1907), Dansinn í Hruna og Hellismenn. Indriði þýddi einnig Vetrarævintýri eftir William Shakespeare (óútgefið leikhandrit) og Víkingana á Hálogalandi, eftir Henrik Ibsen (en leikritið þýddi hann með Eggert Ó. Briem) (útg. 1892). Hann kom að stofnun Leikfélags Reykjavíkur árið 1897.
Hann var þingmaður Vestmanneyinga frá 1890 til 1891. Indriði var oft gestur Jóns Sigurðssonar á heimili hans í Kaupmannahöfn.
Indriði var giftur Mörtu Guðjohnsen og átti með henni sex dætur: Eufemíu, Emilíu, Guðrúnu, Mörtu, Láru og Ingibjörgu; og tvo syni, Einar og Gunnar, sem tóku upp eftirnafnið Viðar. Einar var faðir Jórunnar Viðar, tónskálds, en lést ungur að árum. Gunnar Viðar varð bankastjóri Landsbanka Íslands. Ingibjörg giftist Ólafi Thors, sem varð forsætisráðherra Íslands.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.