Skáldið í skriftinni # 60039

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2004
Condition
Binding
Skáldið í skriftinni. Snorri Sturluson og Egils saga. Höfundur Torfi H. Tulinius.
Hvers vegna var Egils saga samin og hvaða þýðingu hafði hún í huga lesenda á 13. öld? Hver er Egill og hvernig endurspeglar lýsingin á honum atburði í lífi Snorra Sturlusonar, líklegs höfundar sögunnar? Hér glímir Torfi H. Tulinius við þessar og fleiri hliðstæðar spurningar og leggur fram óvænta lausn á þeirri ráðgátu sem Egils saga er. Hugvitssamleg rannsókn á byggingu Egils sögu og innihaldi, sem helgast af nýjum skilningi á eðli íslenskrar menningar á Sturlungaöld og tengslum hennar við evrópska miðaldamenningu leiðir höfundinn inn á nýjar brautir, en hann er prófesor í frönsku og miðaldabókmenntum við Háskóla Íslands og hefur sent frá sér fjölmargar ritsmíðar um fornsögurnar. Þessi fyrsta bók hans um efnið á íslensku hefur ekki aðeins þýðingu fyrir skilning okkar á Egils sögu heldur Íslendingasögum sem bókmenntagrein. Skáldið í skriftinni er í ritröðinni Íslensk menning sem Reykjavíkur-Akademían og Hið íslenska bókmenntafélag standa að. (Bókatíðindi 2004).

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.