Skipulag byggðar á Íslandi # 89212
- Regular
- 9.500 kr
- Sale
- 9.500 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Skipulag byggðar á Íslandi. Frá landnámi til líðandi stundar. Eftir Trausta Valsson.
Bók þessi er yfirlitsrit um megineinkenni hins manngerða
umhverfis á Íslandi. Leitað er allt til upphafsins til að ná fram
skilningi á því hvaða lögmál voru að verki við mótun
byggðamynstursins strax í upphafi, t.d. þegar Ingólfur
Arnarson valdi sér stað til búsetu.
Stærstu áhrifavaldar um mótun byggðar á Íslandi eru nát-
túruöflin og heitir fyrsti hluti ritsins því Náttúran – Hið
mótandi afl. Ritið skiptist í fimm hluta, sem nefndir eru
„bækur“ til að undirstrika sjálfstæði þeirra. Bók tvö nefnist
Fyrstu skref í byggðarmótun og er eins og þeirri fyrri, ætlað að
útskýra þau lögmál sem eru almennt að verki í byggðar-
mótun.