Skuggar feðranna # 85596

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1986
Condition
Binding
Skuggar feðranna. Skáldsaga eftir Mykhailo M. Kotsjúbinski.
Mykhailo M. Kotsjúbinskí (1864-1913) er frægasta skáld Úkraínu, en Skuggar feðranna mun fyrsta ritverk hans sem þýtt er á íslensku. Sögusviðið er bændabyggð í Suðvestur-Úkraínu - í Karpatafjöllunum. Þetta er ástar- og bændalífssaga þar sem mikilúðug náttúran leikur jafnstórt hlutverk og fólkið sjálft. Stutt er á milli draums og veruleika, og þó sagan sé ljóðræn og innileg er hún öðrum þræði harla váleg. Hún er algerlega túlkuð frá sjónarhóli hinna frumstæðu náttúrubarna. Kotsjúbinski sem var uppreisnargjarn föðurlandsvinur blés að frelsisglóðum kúgaðrar þjóðar sinnar og boðaði hugsjónina um betra samfélag þar sem enginn væri ríkur og enginn fátækur, en hann forðaðist eins og heitan eldinn að lita frásögnina eigin skoðunum. Í alfræðibókum er hann talinn mesti ritsnillingur Úkraínumanna og sagður ná bestum árangri í stuttum ljóðrænum sögum, svo sem Skuggar feðranna.


Þýðing Guðmundar Daníelssonar og Jerzy Wielunski er fögur íslenska og kemur efni sögunnar ágætlega til skila. Guðmundur telst í hópi listrænustu samtíðarhöfunda okkar, en Wielunski er Pólverji, skáld og blaðamaður, einstakur málagarpur og hefur sér í lagi gert sér far um að nema tungur fámennsilanda og minnihlutahópa og þjóðarbrota sem innikróuð eru af stórum málsamfélögum. Samvinna þeirra félaga að þýðingunni á Skuggum feðranna virðist snjöll túlkun á frábæru listaverki.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.