Ísland. Ferðasaga frá 17. öld # 82309

Regular
4.900 kr
Sale
4.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1983
Condition
Binding
Ísland. Ferðasaga frá 17. öld. Daníel Vetter segir af ferðum sínum. Hallfreður Örn Eiríksson og Olga María Franzdóttir þýddu. Helgi Þorláksson sá um útgáfuna.
Hús sín hafa þeir að mestu jörðu niðri, lítill munur er á ytri klæðnaði karla og kvenna svo að erfitt er að greina á milli kynjanna og í Heklu logar eldur án afláts. Þannig sagðist Tékkanum Daniel Vetter m.a. frá í ferðalýsingu sinni Islandia eða Ísland sem kom út árið 1638.


Jón Sigurðsson forseti var í hópi þeirra sem töldu frásögn Tékkans mesta fleipur og færð hafa verið rök að því að hann hafi aldrei komið til landsins. Þorvaldur Thoroddsen ritaði hins vegar að Vetter hafi tekið vel eftir öllu á ferð sinni á Íslandi og „sagt svo rétt frá sem honum frekast var unnt“.


Daniel Vetter var hámenntaður maður, kenndi m.a. krónprinsinum, syni Friðriks „vetrarkonungs“. En kom hann til Íslands? Hvaða ár hefur það þá verið? Og af hverju ber mönnum svona mikið á milli í afstöðu sinni til hans? Þessu reyna Helena Kadeckova og Helgi Þorláksson að svara í inngangi.


Heilum 345 árum eftir útkomu sína birtist ferðalýsing Vetters í fyrsta sinn á íslensku, þýdd beint úr tékknesku af Hallfreði Erni Eiríkssyni og Olgu Maríu Franzdóttur. Myndir eru í bókinni, ýtarlegar skýringar og skrár.

Email me when this is available

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.