Ísland framandi land # 84300
- Regular
- 6.900 kr
- Sale
- 6.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Ísland framandi land. Sumarliði Ísleifsson tók saman.
Í þessu riti er rakið flest af því sem útlendir menn höfðu um Ísland og Íslendinga að segja í rituðu máli allt frá elleftu öld og fram undir síðustu aldamót. Það er óneitanlega einkennileg lesning og meira en lítið spaugileg á stundum. Að vísu kemur hún ekki þeim á óvart sem lesið hefur Landfræðisögu Þorvaldar Thoroddsens og hnusað af einu og öðru sem síðar hefur birst, svo sem Kortasögu Haraldar Sigurðssonar og ýmsu fleiru. En hér er þetta efni saman komið í stærri heild, með öðrum áherslum auk þess sem mér sýnist að sumt hafi bæst við.
Höfundur hefur þann hátt á að rekja frásagnir í tímaröð, enda varla annað hægt. Fyrst kemur ellefta til sextánda öldin, síðan frá sextándu öld til miðrar átjándu aldar, þá síðari hluti átjándu aldar, fyrri hluti þeirrar nítjándu og loks síðari hluti hennar. Inn á milli eru yfirlitsgreinar, þematískar samantektir og svo að sjálfsögðu umfjöllun um einstaka höfunda. Talsvert er um þýdda kafla eða endursagða. Öll er frásögn þessi lipurlega rituð, á þægilegu og vönduðu máli og ritið í heild sinni prýðilega skipulagt. Geysilegur fjöldi mynda er hér á síðum, rúmlega 200 segir á bókarkápu. Eru margar þeirra heilsíðumyndir og því mikil og falleg skilirí því að brot bókarinnar er í stærra lagi (22x23,5 cm). Talsvert margar myndanna eru í litum. Þetta verður því gullfalleg bók, sem augnayndi er að skoða. Þá er þess að geta, sem mér finnst góður kostur, hve myndatextar eru ítarlegir og fróðlegir.