Ísland í sjónmáli # 86905
- Regular
- 9.500 kr
- Sale
- 9.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Ísland í sjónmáli. Franskir ljósmyndarar á Íslandi 1845-1900 - Islande en vue. Photographes français en Islande. Æsa Sigurjónsdóttir tók saman.
Bókin er gefin út í tengslum við sýninguna Ísland með augum Fransmanna sem sett var upp á vegum Þjóðminjasafns Íslands, Hafnarborgar og Reykjavíkur - menningarborgar Evrópu árið 2000.
Í þessari glæsilegu bók eru birtar fyrstu ljósmyndir teknar á Íslandi sem sýna á einstakan hátt horfinn heim fortíðar: Fólk við störf sín, híbýli þess og þjóðþekkta menn samtíðar. Texti og myndir falla saman svo að úr verður spennandi saga. Höfundurinn, Æsa Sigurjónsdóttir, hefur fjölþætta menntun í sagnfræði og listasögu. Hún hefur leitað fanga í skjalasöfnum og stofnunum í Frakklandi undanfarin ár. Bókin er á íslensku og frönsku og er gefin út í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands, en myndirnar voru sýndar í Hafnarborg sl. sumar. Bókin hefur fengið frábærar móttökur og dóma, enda "er vandað til hennar yst sem innst" og "ljósmyndirnar látnar njóta sín eins vel og hægt er". (Mbl.) Bókin er "ómissandi ..í höndum hvers þess sem annt er um uppruna sinn" (Mbl.) og ekki síður öllum fagurkerum. (Bókatíðindi 2000).