Ísland um aldamótin # 61126
- Regular
- 4.900 kr
- Sale
- 4.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Ísland um aldamótin. Ferðasaga sumarið 1899 eftir Friðrik J. Bergmann.
Séra Friðrik lítur íslensk
málefni, bæði andleg og veraldleg, föðurlegum gagnrýnisaugum og ber þá hlutina
gjarnan saman við það sem hann þekkir frá Ameríku. Og hann er siðavandur. Á
einum stað segir hann til dæmis:
Það þarf ekki glöggt auga til að sjá, að kirkjurækni á Íslandi hefur farið
stórhnignandi síðastliðin 25-30 ár. Hún er því miður ekki bezt í kauptúnunum, þar
sem fólkið á þó langbezt með að sækja kirkju. Því að þar eru sífelldar útreiðar á
sunnudögum í allar áttir og þá reyna menn að taka daginn eins snemma og þeim er
unnt.
Og ekki er hann hrifinn að aðkomunni að Reykjavík
Þegar kom heim undir höfuðstaðinn, fórum við að verða vör við hinn mesta aragrúa
af útreiðarfólki og voru þar margir nokkuð ölvaðir. Kringum Reykjavík eru einlæg
smákot, þar sem selt er vín, og er einna mest af því gjört á sunnudögum. En í sjálfum
bænum ber mjög lítið á drykkjuskap og er það tvent ólíkt eða áður var, þegar enginn
var til að sporna á móti og frægð þótti að því að vera sem mestur brennivínsberserkur.