Íslensk bókmenntasaga V # 84384
- Regular
- 6,900 kr
- Sale
- 6,900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Íslensk bókmenntasaga V. Árni Ibsen, Dagný Kristjánsdóttir, Jón Yngvi Jóhannsson, Magnús Þór Þorbergsson, Margrét Tryggvadóttir, Matthías Viðar Sæmundsson, Silja Aðalsteinsdóttir. Guðmundur Andri Thorsson ritstjóri. Í þessu fimmta og síðasta bindi Íslenskrar bókmenntasögu er fjallað ítarlega um flesta þætti íslenskra bókmennta frá miðri 20. öld og allt til aldarloka. Hér er sjónum beint að formbyltingu og módernisma í ljóðagerð og sagt frá hatrömmum átökum um ljóðformið. Einnig er fjallað um sögur Thors Vilhjálmssonar, Guðbergs Bergssonar og Svövu Jakobsdóttur sem boðuðu nýja tíma en verk þeirra og fleiri sagnahöfunda ollu líka miklum deilum. Í þessu bindi er sömuleiðis rækileg og tímabær umfjöllun um íslenska leikritun allt frá 1918 fram til aldamóta og sérstakur kafli um íslenskar barnabækur síðustu áratuga. Þá er hér gerð ítarleg grein fyrir ljóða- og sagnagerð á Íslandi eftir 1970 og reifaðar hinar ýmsu stefnur sem þá urðu áberandi; nýraunsæi, fantasíu, uppreisn og póstmódernisma. Loks segir frá því sem kalla má blómaskeið skáldsögunnar í aldarlok og öllum helstu höfundum sem þar koma við sögu gerð nokkur skil.