Íslensk byggingararfleifð I - II # 88587
- Regular
- 19,500 kr
- Sale
- 19,500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Author
—
Location
—
Date
—
Condition
—
Binding
—
Íslensk byggingararfleifð I - II. Eftir Hörð Ágústsson.
Rakin er saga húsagerðarlistar á Íslandi eftir tímabilum. Hundruð ljósmynda og teikninga af endursköpuðum húsum og húshlutum prýða bækurnar.
Í fyrra bindi leitast höfundur við að rekja húsagerðarsögu okkar í ágripsformi um tveggja alda skeið. Fyrri tímamörk eru miðuð við aldur elstu húsa hérlendis en þau seinni við hernám Íslands 1940 er rof urðu við aldalanga sjónlistahefð danska. Efni bókarinnar er að mestu skipt eftir byggingarefni húsanna en ekki rakið í samfelldri tímaröð, er sérhver þáttur lýtur því lögmáli. Í seinna bindinu er varðveislusögu þessarar hefðar gerð skil, athugað hversu henni hefur reitt af og hvað sé til úrbóta því sem aflaga hefur farið.
Hörður Ágústsson er landsþekktur listmálari, hönnuður og áhrifamikill myndlistakennari. Síðustu áratugi hefur hann nær eingöngu helgað sig rannsóknum á íslenskri byggingarsögu og hlotið margskonar viðurkenningu fyrir, meðal annars heiðursdoktorsnafnbók frá Háskóla Íslands.