Íslensk þjóðlög # 45191

Regular
19,500 kr
Sale
19,500 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Author
Location
Reykjavík
Date
1960
Condition
Binding
Íslensk þjóðlög Söngur Engel Lund. Útsetning og undirleikari Ferdinand Rauter.
Þessi eru þjóðlögin sem Engel Lund syngur - Almáttugur, Guð, allra stétta ; Austan kaldinn á oss blés ; Bar svo til í byggðum ; Bí, bí og blaka ; Blástjarnan þótt skarti skær ; Drottins hægri hönd ; Einsetumaður einu sinni ; Eitt sinn fór ég yfir Rín ; Fagurt er í Fjörðum ; Fagurt galaði fuglinn sá ; Fífilbrekka, gróin grund ; Góða veizlu gjöra skal ; Góða veislu gjöra skal ; Grátandi kem ég nú, Guð minn til þín ; Guð gaf mér eyra ; Hér undir jarðar hvílir moldu ; Hættu að gráta, hringaná ; Kindur jarma í kofunum ; Kveð ég um kvinnu eina ; Kvölda tekur, sezt er sól ; Kvölda tekur, sest er sól ; Kysstu mig, hin mjúka mær ; Litlu börnin leika sér ; Með gleðiraust og helgum hljóm ; Móðir mín í kví, kví ; Nú vil ég í nafni þínu ; Ó, mín flaskan fríða ; Sofðu, unga ástin mín ; Sof þú, blíðust barnkind mín ; Stóðum tvö í túni ; Sumarið þegar setur blítt ; Syngur lóa ; Tunga mín, vertu treg ei á ; Upp, upp mín sál ; Vera mátt góður ; Veröld fláa sýnir sig ; Það er svo margt, ef að er gáð.
Engel Lund (14. júlí 1900 – 15. júní 1996) var dönsk-íslensk söngkona og var þekkt sem þjóðlagasöngkona víða um heim. Hún var einnig þekktur tónlistarkennari í Reykjavík eftir 1960. Hún var af dönskum ættum en fæddist á Íslandi og ólst hér upp til ellefu ára aldurs. Engel Lund var oft nefnd Gagga.


Foreldrar hennar voru Michael Lars Lund, lyfsali í Reykjavíkurapóteki, og kona hans, Emilie Marie Magdalene Hansen. Hún lauk stúdentsprófi í Kaupmannahöfn árið 1919 og lagði síðan stund á söngnám í Kaupmannahöfn, París og Þýskalandi. Frá árinu 1933 var hún á nær stanslausum tónleikaferðalögum, en hún settist að í London í síðari heimsstytjöldinni og starfaði lengi þar. Hún var þekkt sem þjóðlagasöngkona víða um heim og hafði það fyrir sið að ljúka öllum tónleikum á íslensku þjóðlagi og oftast varð lagið Litlu börnin leika sér fyrir valinu.


Engel fluttist aftur til íslands þegar hún hætti að syngja opinberlega árið 1960. Hún var lengi kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík og kenndi nemendum sínum heima við fram undir nírætt. Árið 1960 gaf hún út plötu og bók um íslensk þjóðlög og skýringar við þau. Einnig má nefna að Sigurður Nordal skrifaði um hana þekkta grein sem hann kallaði Litla stúlkan í apótekinu í sambandi við fyrstu tónleikaferð hennar á íslandi, en greinin birtist upphaflega í tímaritinu Unga Ísland árið 1947 og síðan í Félagsbréfum Almenna bókafélagsins 1961 og í Morgunblaðinu 1980. Engel Lund var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu m.a. fyrir kennslustörf og þátt sinn í að kynna íslensk þjóðlög á erlendri grund.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.