Íslenzka teiknibókin í Árnasafni # 70459
- Regular
- 6.900 kr
- Sale
- 6.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Íslenzka teiknibókin í Árnasafni eftir Björn Th. Björnsson. Ásgerður Ester Búadóttir gerði teikningar.
Í teiknibókinni er saga sköpunarinnar sögð í sex litlum myndum, á tveim síðum. Þeir sem muna sín kristin fræði taka e.t.v. eftir því, að teiknarinn fylgir sköpunarsögunni ekki bókstaflega, heldur dregur hann verk tveggja daga saman í eitt, sköpun ljóss og myrkurs og sköpun festingar, en skiptir hinsvegar sköpun ferfættra dýra og mannsins í tvo reiti. Því fer fjarri að þetta sé nokkurt persónulegt túlkunarbragð hans, heldur er það orðin föst hefð á síðari hluta miðalda. Maðurinn er orðinn svo kotroskinn, að honum finnst hann yfir það hafinn að eiga samflot með ferfættum skepnum, jafnvel á þessum árdögum allra hluta, og nokkru síðar gengur hann feti framar og aðskilur sköpun karls og konu í tvær ólíkar myndir. Þótt smávægilegt sé, speglar það hina breyttu heimsmynd mannsins, - hann lítur æ meir á sig sjálfan sem þungamiðju veraldar.