Smaladrengurinn # 8025

Regular
4.600 kr
Sale
4.600 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Akureyri
Date
1923
Condition
Binding
Smaladrengurinn. Leikrit í V þáttum eftir Freymóð Jóhannsson.


Áslaug: - Illa? Hvað eigið þjer við með því?

Einar: - Jeg var að hugsa um -- hm. Erindið var eiginlega að, hjer --- Þjer eruð ógiftar -- auðvitað.

Áslaug: - Jú --- það er ég.

Einar: - Hm. -- Ja, þá datt mjer í hug að spyrja yður um það, svona grenslast um það, hvort þjer munduð ekki vera til með að, hm -- að giftast?

Áslaug: - Jeg býst ekki við að giftast fyrst um sinn.

Einar: - (Stendur upp og gengur um gólf. Snýr sjer alt í einu að Áslaugu). Ekki þó að jeg legði hjarta mitt, sjálfan mig, alla mína framtíð og framtíðarhorfur í auðmýkt fyrir fætur yðar (krýpur) og bæði yður að veita mjer þá upphefð, að verða -- konan mín. (Grípur hönd Áslaugar). Jeg skal sjá um, að þjer þurfið aldrei að drepa hendi í kalt vatn.

Áslaug: - (Stendur upp) Við skulum ekki eyða fleiri orðum um þetta, Einar. -- Jeg get ekki orðið konan yðar.

Einar: - Einmitt það, -- Jeg mátti náttúrulega búast við því. -- En -- Hm -- mætti jeg -- heyra ástæðuna.

Áslaug: - Jeg elska annan mann og get þess vegna ekki elskað yður.

Einar: - (eftir umhugsun) Nei, það er ekki von. - Nú - þá get jeg farið að fara. -- Hm. -En ef ungfrúin skyldi nú -- ekki giftast þeim manni. Hjer -- mætti jeg þá hafa nokkra von? - Jeg get beðið nokur ár, ef þjer viljið.

Áslaug: - Jeg gef yður enga von, því að jeg get aldrei orðið konað yðar.

Einar: - Hm -- einmitt það.

Áslaug: - Má ekki bjóða yður kaffisopa?

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.