Sögur eftir Gunnar Gunnarsson # 47926

Regular
9.500 kr
Sale
9.500 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1912
Condition
Binding
Sögur eftir Gunnar Gunnarsson.

Sögurnar eru - Augu dauðans ; Sáttin ; Sporður ; Hefndin ; Bónorð Geirs ; Systurnar ; Dimmufjöll ; Rauði fossinn ; Kirkja fyrirfinst engin ; Hjálmar flækingur.


Gunnar Gunnarsson fæddist 18. maí 1889 á Valþjófsstað í Fljótsdal, næsta bæ við Skriðuklaustur. Hann var elsta barn foreldra sinna, Gunnars Helga Gunnarssonar og Katrínar Þórarinsdóttur. Fjölskyldan flutti að Ljótsstöðum í Vopnafirði vorið 1896 og þar andaðist móðir hans úr lungnabólgu 18. september 1897. Móðurmissirinn varð honum þungbær og setti mark sitt á líf hans og skrif.

Gunnar byrjaði ungur að yrkja kvæði og skrifa smásögur og leikrit. Þegar hann var aðeins 17 ára komu fyrstu bækur hans út, Vorljóð og Móðurminning. Ljóðakverin voru upphafið á langri og bjartri framabraut.

Gunnar ákvað að gerast rithöfundur á danska tungu vegna þess að íslenskan var töluð af fámennri þjóð. En frægð og frami komu ekki fyrirhafnarlaust.
Fyrsta skáldsaga Gunnars, Trond Ørnen, hlaut ekki náð fyrir augum útgefenda. Frá hausti 1909 og fram til 1912 lifði Gunnar við kröpp kjör, fyrst í Árósum og síðan í Kaupmannahöfn. Mestum tíma varði hann á bókasöfnum og dró fram lífið á ritlaunum sem hann fékk fyrir kvæði, smásögur og greinar í tímaritum og blöðum.

Á nýársdag 1912 flutti Gunnar í lítið kvistherbergi í Kaupmannahöfn og skrifaði á fáum mánuðum fyrsta bindið af Sögu Borgarættarinnar. Um vorið tók Gyldendal bókina til útgáfu. Þar með var ísinn brotinn og glæstur ferill hafinn.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.