Sólarsýn # 80270

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1960
Condition
Binding
Sólarsýn. Kvæði eftir séra Bjarna Gissurarson í Þingmúla. Jón M. Samsonarson sá um útgáfuna.
Bjarni Gissurarson 1621 – 1712 var skáld og prestur í Þingmúla í Skriðdal, fæðingarstað sínum. Foreldrar hans voru Gissur Gíslason prestur að Þingmúla og kona hans, Guðrún, dóttir Einars Sigurðssonar í Eydölum. Stúdent úr Skálholtsskóla 1643, var síðan í í þjónustu Brynjólfs Sveinssonar biskups þar til hann fékk Þingmúla 1647.


Gegndi prestskap í Þingmúla til 1702, síðan á Hallormsstað 1702-1703, eftir lát Þorleifs Guðmundssonar tengdasonar síns. Var síðan um um hríð hjá dóttur sinni að Stóra-Sandfelli, en fór síðan aftur að Hallormsstað til Eiríks sonar síns, sem var þá tekinn við prestskap þar, og þar andaðist Bjarni.


Bjarni var gáfumaður, gleðimaður og gamansamur. Hann er í tölu helstu skálda síns tíma og mjög mikilvirkur, orti trúarljóð og veraldleg kvæði af ýmsum toga, einkum ádeilur, skemmtibragi og ljóðabréf, einnig vikivakakvæði. Til er fjöldi kvæða eftir hann víðs vegar í handritum. Jón Samsonarson handritafræðingur og sérfræðingur á Árnastofnun gaf út úrval kvæða hans árið 1960 undir heitinu Sólarsýn með ritgerð um skáldið. Bjarni er eitt hinna austfirsku skálda.


Kona Bjarna var Ingibjörg, dóttir Árna Þorvarðarsonar prests í Vallanesi.

Email me when this is available

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.