Sóldagar # 56145

Regular
3.900 kr
Sale
3.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Akranes
Date
1993
Condition
Binding
Sóldagar. Ljóðasafn Guðmundar Ingi Kristjánssonar. Helgi Sæmundsson bjó til prentunar.
Guðmundur Ingi Kristjánsson fæddist á Kirkjubóli í Bjarnardal í Önundarfirði 15. janúar 1907.
Guðmundur Ingi ólst upp á Kirkjubóli og var þar heimilisfastur alla ævi. Hann stundaði nám í eldri deild Alþýðuskólans á Laugum 1929-1930 og í eldri deild Samvinnuskólans í Reykjavík 1931-1932, en var að öðru leyti sjálfmenntaður. Ungur hóf hann afskipti af margháttuðum félagsmálum innan sveitar og utan og hélt því áfram meðan heilsa hans leyfði. Hann var í stjórn ungmennafélagsins Bifröst í Mosvallahreppi 1922-1937 og 1938-1942, og ritari Héraðssambands ungmennafélaga Vestfjarða 1932-1951. Í stjórn Kaupfélags Önfirðinga sat hann 1935-1937 og 1938-1978. Hann sat í stjórn Búnaðarfélags Mosvallahrepps 1927-1947, og var formaður Búnaðarsambands Vestfjarða 1947-1983. Hann var fulltrúi á þingum Stéttarsambands bænda frá stofnun þess 1945, og stjórnarmaður þar 1970-1986. Í hreppsnefnd Mosvallahrepps sat hann 1938-1956 og 19521982, þar af oddviti samfellt frá 1956. Sýslunefndarmaður var hann 1954-1986. Einnig átti hann lengi sæti í skólanefnd hreppsins, og einnig í skólanefnd héraðsskólans á Núpi. Aðalatvinna hans var búskapur, en formlega tók hann þó ekki við búi á Kirkjubóli fyrr en 1944; þangað til var móðir hans talin fyrir búinu. Samhliða búskapnum fékkst hann við barnakennslu í hreppnum, með hléum 1927-1946, en samfellt 1954-1974. Frá 1955 var hann skólastjóri barnaskólans í Holti. Nokkur afskipti hafði hann einnig af stjórnmálum og var þrisvar í framboði til alþingis fyrir Framsóknarflokkinn: við tvennar kosningar 1942 á Ísafirði, og 1946 í Vestur-Ísafjarðarsýslu. Um 1960 tók hann einnig nokkurn þátt í störfum samtaka herstöðvaandstæðinga.


Guðmundur Ingi sendi frá sér fimm ljóðabækur undir heitunum: Sólstafir 1938, Sólbráð 1945, Sóldögg 1958, Sólborgir 1963 og Sólfar 1981. Ljóð allra þessara bóka voru endurútgefin í safnritinu Sóldagar 1993, en þar er einnig að finna viðauka með yngri ljóðum. Auk þess hefur birst eftir hann fjöldi ljóða og lausavísna, greina og frásagna í blöðum, tímaritum og safnbókum.


Guðmundur Ingi var sæmdur riddarakrossi 1984 og var heiðursborgari Mosvallahrepps og síðar Ísafjarðarbæjar.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.