Sóleyjarsaga # 48563
- Regular
- 6.900 kr
- Sale
- 6.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Sóleyjarsaga. Skáldsaga eftir Elías Mar.
Í Verkamanninum 4. maí 1954 birtist dómur um Sóleyjarsögu Elíasar Mar. Þar segir m.a. "Undirritaður verður að viðurkenna það, að fyrri bækur höfundar hefur hann ekki lesið og kemur því enginn samanburður við þær til greina.
Sóleyjarsaga gerist í Reykjavík á síðustu árum. Sögupersónur eru borgarar höfuðstaðarins, og leynir sér ekki að höfundur þekkir það fólk mæta vel, áhugamál þess, lífsbaráttu og hvatir, enda margar persónur skýrt og greinilega mótaðar, þó að nokkuð sé erfitt um vik, að gera sér þess fulla grein, meðan sagan er ekki nema hálf.
Ekki gerist þess þörf að rekja efni bókarinnar, enda lesendum hollast að kynna sér það sjálfir án nokkurra milliliða.
Mjög er fjallað um félagsleg vandamál nútímans og þau áhrif, sem það hefur á fólkið, bæði þá,sem fara á mis við gæði lífsins og hinna, sem njóta þeirra í stærra skammti en góðu hófi gegnir. En einmitt sú staðreynd, að höfundi virðist fyllilega ljósar orsakir og afleiðingar á þessu sviði, gefur bók hans fyrst og fremst gildi.
Sóleyjarsaga er sönn lýsing ýmissa mikilvægra þátta, sem skapa Reykjavík nútímans og við bíðum framhaldsins með eftirvæntingu. Fyrr en það kemur verður sagan ekki dæmd til fulls né heildaráhrif hennar.
Þ. D.