Söngur í sefi # 88293
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Söngur í sefi. Ljóð eftir Elínu Eiríksdóttur frá Ökrum.
Elín Eiríksdóttir er fædd 26. október árið 1900 að Ökrum á Mýrum og ólst þar upp. Hún giftist Pétri Söebeck og eignuðust þau þrjár dætur. Þau bjuggu fyrst á Akureyri en fluttust til Kaupmannahafnar um 1930 og áttu þar heima í tíu ár. Elín lést í Reykjavík 26. mars 1987.
Elín var víðlesin, hafði mikla frásagnarhæfileika og áhuga á dulrænum málum. Hún fékkst töluvert við að yrkja en birti lítið framan af ævi og er t.a.m. ekki í Borgfirskum ljóðum sem komu út 1947. Það ár var hins vegar ljóð hennar „Ef engill ég væri“ gefið út á nótum við lag Hallgríms Helgasonar. Alls gaf Elín út þrjár ljóðabækur, allar á eigin kostnað. Sú fyrsta, Söngur í sefi, kom út 1955, Rautt lauf í mosa árið 1958 og tíu árum síðar Skeljar á sandi árið 1968. (www.skald.is)