Söngvar smælingjans # 70277

Regular
3.900 kr
Sale
3.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1934
Condition
Binding
Söngvar smælingjans. Ljóð eftir Sumarliða Halldórsson.
Þetta mun vera eina bók Sumarliða Halldórssonar.
Sumarliði Halldórsson var fæddur að Litlu-Fellsöxl í Skilmannahrepi árið 1881. Hann var við nám í Flensborgarskóla 1904-1906 en fór að því loknu til Danmerkur og lagði stunda á verklegt skógræktarnám. Var hann einn fjögurra skógarvarða er hófu störf hjá Skógrækt ríkisins um 1910. Sumarliði var skógvörður á Vesturlandi til 1914. Hann settist að á Akranesi og vann þar við ræktunarstörf og kennslu fram til ársins 1940 er hann fluttist til Reykjavíkur og tók að sér umsjón með trjárækt kirkjugarða borgarinnar. Rækti hann það starf með stakri alúð um 15 ára skeið.
Sumarliði var víðlesin og fróður. Hann var ljóðelskur og hagmæltur og birtust ljóð og kvæði hans í ýmsum blöðum og tímaritum.
Eiginkona Sumarliða var Sigríður Guðmundsdóttir frá Belgsholti í Melasveit.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.