Sonja. Líf og leyndardómar # 72325
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Sonja. Líf og leyndardómar Sonju W. Benjamínsson de Zorrilla. Reynir Traustason skráði.
Líf heimskonunnar Sonju Wendel Benjamínsson de Zorrilla hefur verið sveipað dulúð. Sonja var fögur og hrífandi kona sem hafði gaman af að umgangast fólk. Um sambönd hennar við karlkynið hafa myndast ýmsar sögur og sumar þeirra sannar. Um tveggja ára skeið átti Sonja í eldheitu ástarsambandi við Aristotle Onassis, grískan skipakóng sem giftist Jaqcueline Kennedy. Síðar giftist hún Alberto Zorrilla, bráðmyndarlegum ólympíumethafa og töfrandi tangódansara frá Argentínu. Alla tíð fylgdi Sonja þeirri bjargföstu skoðun sinni að konur ættu að taka örlög sín í eigin hendur. Hún bjó yfir miklu hugrekki og frelsisþrá, stundaði myndlist, ræktaði með sér ótvíræða viðskiptahæfileika og varð vellauðug. Í þessari ótrúlegu bók segir hún á hispurslausan hátt frá langri og litríkri ævi sinni, kynnum sínum af sumu af ríkasta fólki veraldar og frá því þegar hún sneri aftur til Íslands til að eyða þar ævikvöldinu með útsýni til íslenskra fjalla. Sonja er saga um ævintýri og ástir heimskonu sem setti sjálfstæði sitt ofar öllu öðru. (Bókatíðindi 2002).