Sporaslóð # 42641
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Sporaslóð. Saga af sérstæðum atburðum og skemmtilegu fólki. Bragi Þórðarson skráði.
Bækur Braga Þórðarsonar um íslenskt þjóðlíf á fyrri tíð hafa notið mikilla vinsælda. Sporaslóð hefur að geyma safn frásagna af atburðum og fólki sem setti mark á þjóðlífið fyrrum. Efni bókarinnar er fjölbreytt: Fátæk stúlka af Skaganum varð ein fyrsta konan sem gekk í Hjálpræðisherinn. Gvendur í Halakoti var annálaður drykkjusvoli, en eftirsóttur skútukarl vegna hreysti og dugnaðar. Vitavörðurinn á Breiðinni var vinsæll sagnamaður sem krítaði liðugt. Bjarni Ólafsson var farsæll skipstjóri, en drukknaði ásamt fleirum úr áhöfn sinni. Þeir voru ósyndir og til minningar um þá var reist Bjarnalaug til að efla sundkennslu. Kötturinn á Hraunsnefi þótti svo góður til áheita að hann varð auðugasti köttur sem um getur. Sagt er frá samskiptum íslenskra fiskimanna á árabátum við breska togara sem rændu fiskimiðin. Sagt er frá íslenskum sjómönnum sem lögðu sig í lífshættu í aftakaveðri við björgun áhafnar franska rannsóknaskipsins Pourquoi pas? (Bókatíðindi 2009).