Sprek. Ljóð og stökur # 50133

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1961
Condition
Binding
Sprek. Ljóð og stökur eftir Jökul Pétursson.
Sprek er fyrsta og eina bók Jökuls Péturssonar.


í Vísi,1. nóvember 1961, er viðtal við Jökul Pétusson ljóðskáld og málarameistara. Tilefni viðtalsins er útkoma ljóðabókarinnar Sprek. Við grípum niður í viðtalið: -
Maður kemst í annarlegt
ástand við að sjá fyrstu
bókina sína koma á prent.
Ég er vafalaust ekki einn um
það. Það ríkir óvissa allt í
kring um mann. Hvað hefur
eiginlega skeð? Hvernig
verður þessum „andlegheitum" manns tekið? Þarf
maður að sjá eftir þessu, eða
á maður lof skilið? Maður
stendur sjálfur eins og stórt
spurningamerki frammi fyrir
ráðgátu.

— Ert þú atómskáld?

— Nei, biddu sannan
fyrir þér.
— Ertu á móti þeim?

— Ég kann betur við
gamla lagið. Mér finnst hefðbundni
stíllinn og rímið
henta ljóðagerð okkar íslendinga.
Annað eigi þar
ekki heima.
--------



Veður var slæmt, ausandi
rigning og ég treysti mér ei
út. Mér leiddist. — Hundleiddist.
En þá kom andinn
allt í einu yfir mig og eg orti
þá í einum dómadagshvelli
rímu af Pétri Salómonssyni
Gullstrandarjarli. Þar í er
þetta stef um Selsvararbardaga
kappans:


Pétur barði, Pétur hjó

Pétur harða sýndi kló.

Pétur varðist, Pétur hló,

Péturs skorðast hvergi ró.


Og niðurlagið á Pétursrímu er þannig



Lent er brátt og lyndi kátt,

leikur þrátt við ölduslátt.

Kveðið hátt, en hafið blátt

hlustar dátt á rímna þátt.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.