Ást og öngþveiti í Íslendingasögum # 66162

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1974
Condition
Binding
Ást og öngþveiti í Íslendingasögum. Eftir Thomas Bredsdorff. Þýðandi Bjarni Sigurðsson.
Í bókakynningu í Þjóðviljanum 14. desember 1974 er sagt frá Ást og öngþveiti. "Thomas Bredsdorff er ungur danskur fræðimaður, kennari í norrænum bókmenntum við Hafnarháskóla. Ást og öngþveiti hefur að
geyma rannsóknir á lífsmynd Íslendingasagna, en er þó umfram
annað skilgreining á nokkrum
frægustu fornsögum vorum, svo
sem Egils sögu, Gisla sögu Súrssonar, Njáls sögu, Grettis sögu og
Laxdælasögu. Þekking höfundar
og hugkvæmni verður ekki dregin
i efa, enda kemst hann i bók sinni
að ýmsum markverðum og nýstárlegum niðurstöðum. M.a.
sýnir hann fram á, að bak við hinar auðsæju uppistöðumyndir
verkanna, sem speglast i blóðugum átökum um völd og heiður,
má auðveldlega greina annað
sagnamynstur, hinar ástriðufullu
ástir og hætturnar, sem þjóðfélaginu eru búnar, þegar þeim er
fylgt eftir án þess að hirt sé um
lög og réttarreglur. Þannig verða
Íslendingasögurnar að mati höfundarins tilraun til að skýra ástæðuna fyrir öngþveiti og upplausn hins islenska þjóðveldis, en í lokakafla er greint frá þvi, að hvaða leyti þessar athuganir koma heim við fyrri rannsóknir á
sögunum."

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.