Stefanía Melsteð. Æfiminning og brjef # 63561

Regular
9.500 kr
Sale
9.500 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Kaupmannahöfn
Date
1926
Condition
Binding
Stefanía Melsteð. Æfiminning og brjef með sjö ljósprentuðum myndum. Bogi Th. Melsteð setti saman og gaf út.

Í Lögréttu 22.janúar 1927 er fjallað um bók Boga Th. Melsteð um systur sína Stefaníu. Þar segir; "Um bók þessa höfur verið
næsta hljótt. Hún kom hingað í
bókaverslun rjett fyrir jólin.
Hr. Bogi Th. Melsteð hefur samið hana og gefið út til minningar
um systur sína.
Stefanía Melsteð er fædd í
Klausturhólum 8. ágúst 1864.
Foreldrar hennar voru sjera Jón
Pálsson Melsteð prófastur og frú
Steinunn Bjarnadóttir Melsteð.
Stefania ólst upp á Þingvöllum
hjá sjera Símoni Bech og frú
Önnu föðursystur sinni. Var það
orðlagt fyrirmyndarheimili. Haust
ið 1874 gekk Stefanía í Barnaskóla Reykjavíkur og var í honum tvo vetur. Dvaldi hún þá hjá
frú Þórdísi Thorsteinsen, sem
einnig var föðursystir hennar.
Dvaldi hún hjá henni oft á vetrum síðan. Þegar Stefanía var á
14. ári veiktist hún af sjúkdómi
þeim, er dró hana loks til dauða.

Vorið 1879 fluttist Stefanía að
Kárastöðum með frú Önnu fóstru sinni sem þá var orðin ekkja.
En haustið 1886 fór hún til móður sinnar að Klausturhólum og
ljetst þar á uppstigningard. 1889.

Bókin styðst mikið við sendibrjef, bæði frá Stefaníu og til
hennar. Auk þess flytur hún
vitnisburð ýmsra þeirra er þektu
hana, þar á meðal þeirra Ólafíu
Jóhannsdóttur og frú Þórunnar
Richardsdóttur í Höfn, sem báðar voru miklar vinstúlkur hennar.
Í bókinni eru einnig fögur eftirmæli eftir Dr. Valdimar Briem.
Lýsir skáldið Stefaníu á þessa
leið:


„Þú sjúka barn, þú hetja hraust,

þú hreina ljós á döprum kveik,

þú fölva lilja, fagra rós,

þú fallni reyr, þú sterka eik".


Æfi Stefaniu varð hvorki löng
nje viðburðarík. Hún andaðist á
25. ári og var sjúkdómi þjáð í
11 ár. En þrátt fyrir það skildi
hún eftir fagran gróður í sporum
sínum. Hún var á alla grein fyrirmyndarstúlka, því hjá henni fóru
saman gáfur og göfuglyndi. Hún
hafði einstakt lag á því að láta
lítið bera á raunum sínum.

Hlotnaðist henni það sem hún
þráði mest: að verða fremur til
gleði en sorgar ástvinum sínum
og öllum þeim, er hún var samtíða, — þrátt fyrir miklar þjáningar og dapurleika veikindanna.

Þetta er einróma vitnisburður
allra manna, sem nokkuð þektu
til Stefaníu. Hún var í þeim gæfumannaskara, er hlúir að öllu þvi,
sem best er og háleitast í hverju
hjarta.

Í þessu er fólgið gildi bókarinnar. Hún mun verða góður gestur ættmanna Stefaniu sál. En hún
á ennfremur erindi til allra
þeirra, sem bækur vilja lesa, og
hafi Bogi Melsteð þökk fyrir sitt
verk.

Gamall Þingvellingur.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.