Ástir samlyndra hjóna # 84284
- Regular
- 4.900 kr
- Sale
- 4.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Ástir samlyndra hjóna. (Tólf tengd atriði). Skáldsaga eftir Guðberg Bergsson.
Þegar að því rak hafði hjónaband Sveins og Katrínar staðið óslitið, með nokkrum meinlausum frávikum, í tæpan aldarfjórðung. Um og eftir hjónavígsluna tengdi girnd líkamans þau böndum, síðan afleiðing hennar: börnin. En tæplega fertug áttu hjónin fátt sameiginlegt annað en húseign og örlitla bankainnistæðu, sem duldi kynþreytuna hjá báðum. Hún sagði við hann á kvöldin: Guð veit ég væri fyrir löngu orðin staðuppgefin í þessu víti, strandaði ekki allt á lúshægum uppvexti barnanna. Hann svaraði engu, en hugsaði: hreyfi ég hönd eða fót þá er mér hús og innistæða töpuð. Af þessum ástæðum kaus Sveinn að þola óþolandi sið Katrínar að rjúka að heiman hvenær sem þeim sinnaðist.