Stökur og stef # 61134
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Stökur og stef. Kvæði eftir Emil Petersen.
Þetta er eina bók Emils Petersen.
Emil Petersen var fæddur á Akureyri árið 1866. Foreldrar hans voru Hans Peter Emil Petersen beykir á Akureyri og barnsmóðir hans Guðrún Jónsdóttir saumakona á Akureyri. Emil var bóndi í Bakkaseli og á Gili í Öxnadal, síðar á Gili í Glerárþorpi á Akureyri. Hann dó árið 1936. Sonur Emils var Tryggvi Emilsson, bóndi, verkamaður og skáld.
Stökur
Mjög er ævi kyljan köld,
kvíða sár og nöpur.
Ljósið mitt er lítið í kvöld
lundin sár og döpur.
Safnað hef ég aldrei auð
unnið þreyttum mundum.
Drottinn hefur daglegt brauð
dregið við mig stundum.
Sólin valla sefur blund.
Svanir snjallir kvaka.
Hlustar fjall og fífusund.
Fuglar allir vaka.
Sumum mundi sýnast ljótt
sem ei undur væri.
Hlýju sprundi hjá í nótt
hér ef blunda færi.
Þó að víða vinda hljóð
vilji lýði þreyta.
Oft er blíðan undur góð
inn um hlíðar sveita.
Veislu halda vil eg hér,
verma kaldan bæinn.
Því skal tjalda til sem er
á töðugjaldadaginn.