Strengjatök # 87909

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Akureyri
Date
1937
Condition
Binding
Strengjatök. Ljóðmæli eftir Konráð Vilhjálmsson.
Konráð Vilhjálmsson fæddis að Sílalæk í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu í júlí 1885. Vilhjálmur faðir hans var sonur Jónasar bónda Guðmundssonar að Sílalæk og konu hans Guðrúnar Jónsdóttur frá Stórutungu í Bárðardal. Móðir Konráðs var Kristín Jakobína Kristjánsdóttir Steinssonar, hálfsystir Þorgríms í Nesi. Kristján faðir hennar mun hafa verið ættaður úr Eyjafirði, skyldur Hvassafellsætt.
Sjö ára flytur Konráð með foreldrum sínum að Hafralæk í sömu sveit, bjuggu foreldrar hans þar til æviloka. Á Hafralæk var Konráð allt til ársins 1930 að hann fluttist til Akureyrar.
Snemma bara á miklum og fjölskrúðugum gáfum hjá Konráð og tókst honum að komast í Gagnfræðaskólann á Akureyri og lauk þaðan gagnfræðaprófi vorið 1904. Hann stundaði nám við Kennaraskólann í Reykjavík árið 1908 og kenndi að því loknu við Barnaskólann í Reykjavík. En hugurinn stefndi heim í Aðaldal, til að starfa við kennslu, búskap og félagsstörf. Hann hóf búskap að Hafralæk ásamt eignkonu sinni Þórhöllu Jónsdóttur frá Brekknakoti og stundað meðfram búskapnum kennslu í sinni sveit.
Hann aflaði sér þekkingar um hin fjölbreyttustu efni og var eftirsóttur fyrirlesari á samkomum víða um Norðurland. Hann var gjarnann fenginn til að yrkja erfiljóð og eftirmæli og talaði hann oft og flutti hugleiðingar og ljóð við útfarir.
Strengjatök er eina ljóðabók Konráðs Vilhjálmssonar.

Email me when this is available

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.