Suður á Pólinn # 45653
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Suður á Pólinn. Íslenski skíðaleiðangurinn. Ólafur Örn Haraldsson segir frá ferð á Suðurpólinn. Myndir Ingþór Bjarnason, Haraldur Örn Ólafsson og Ólafur Örn Haraldsson, uppdrættir Guðmundur Ó. Ingvarsson .
Í tæpa tvo mánuði brjótast þrír íslenskir ofurhugar áfram í stöðugum mótvindi og grimmdarfrosti Suðurskautslandsins. Ekkert stöðvar þá, hvorki, úfnir skaflar né sprungur. Hver dagur líður með þrotlausu erfiði. Hvað knýr þessa menn áfram? Hvaða baráttu heyja þeir innra með sér og við miskunnarlausa náttúru á stærsta jökli heims? Bókin um skíðaleiðangur Ólafs Arnar Haraldssonar, Haralds Arnar Ólafssonar og Ingþórs Bjarnasonar er ævintýri líkust. Eftir mikið harðræði stóðu þeir á Suðurpólnum á nýársdag 1998. Í lifandi og grípandi frásögn opnar höfundurinn lesandanum veröld ísálfunnar í suðri, sem flestum er ókunn, og með einlægum hætti veitir hann sýn inn í hugarheim pólfarans og átökum hans við sjálfan sig. Óvenjuleg og heillandi ferðasaga frá Reykjavík til Suðurpólsins með fjölda glæsilegra ljósmynda. (Bókatíðindi 2002).