Sveinn framtíðarskáld # 55334
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Sveinn framtíðarskáld. Björn O. Björnsson tók saman.
Sveinn Helgi var fæddur að Blöndubakka í Austur-Húnavatnssýslu sonur hjónanna Helgu Bjarnadóttur og Jóns Stefánssonar. Sveinn var í Flensborgarskóla 1906-1908, tók gagnfræðapróf frá gagnfræðaskólanum á Akureyri, settist síðan í 4 bekk Menntaskólans og varð stúdent 1914. Hann innritaðist í læknadeild Kaupmannahafnarháskóla og bjó á Garði (Regensen). Seint á næsta hausti innritaðist hann í heimspekideildina sem norrænustúdent. Snemma á útmánuðum 1916 fór Sveinn á spítala og síðan á drykkjumannahæli og útskrifaðist þaðan í ágúst. Kynntist næsta vetur danskri konu sem hann giftist 1922, en hafði þá lokið námi í verslunarskóla. Hann vann við endurskoðun og rak eigin fyrirtæki ásamt konu sinni. Sveinn varð kunnur af skáldskap sínum þegar hann settist í 4. bekk Menntaskólans 1911 og mörg kvæða hans birtust í Óðni og ljóðabók Framtíðarinnar. Hann var þá oft kenndur við það félag og nefndur Sveinn Framtíðarskáld. Hann átti sér undarlega sögu og andstæðukennda. Æviferill hans lá frá sviðsljósi aðdáunar, ásta og skáldskapar, inn á ofdrykkjumannahæli, sem skilaði honum af sér sem athafnasömum góðborgara, með forn kynni og bernskubrek langt úr sjónmáli.