Svipþing. Minningarþættir # 84370
- Regular
- 4.900 kr
- Sale
- 4.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Svipþing. Minningarþættir. Sveinn Skorri Höskuldsson segir frá.
Meginhluti þessarar bókar eru minningar Sveins Skorra Höskuldssonar um afa sína og ömmur og aðra forfeður og er sögusviðið fyrst og fremst Skorradalur, Reykjadalur og Kaldakinn. Þessar listilega skrifuðu og skemmtilegu minningar bera þess öll bestu einkenni hins sígilda íslenska sagnaþáttar. Af næmleik dregur Sveinn Skorri upp meitlaðar myndir af glæsimennum og hugsjónafólki, lífsnautnamönnum, skáldum og sterkum konum. Lýst er örlögum íslensks búandfólks um leið og lesandi er leiddur inn í þá veröld sem var í íslenskum sveitum. Þá er sérstakur þáttur um litríkan og minnisstæðan bónda, Eirík í Bakkakoti í Skorradal. (Káputexti).