Teikningar Kristínar frá Keldum # 87021

Regular
4.900 kr
Sale
4.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Selfoss
Date
2014
Condition
Binding
Teikningar Kristínar frá Keldum. Formála ritar Þórður Tómasson. Í bókarauka eru minningaskrif höfundar.


Teikningar Kristínar frá Keldum er merk heimild um íslenska alþýðulist. Seint á fimmta áratug 20. aldar þegar gamla torfbæjarsamfélagið er á förum réðist Kristín Skúladóttir (1905-1995) í það verk að teikna upp muni og mannvirki gamla samfélagsins eins og þau komu fyrir á æskuheimili hennar. Þetta var gert að áeggjan Skúla föður hennar sem var einstaklega hirðusamur og mikill áhugamaður um muni gamla tímans. Á Keldum var og er raunar enn óvenjumikið varðveitt af bæði húsum, verkfærum og smágripum fyrri tíðar. Elst alls þessa er hinn forni skáli á Keldum sem er í mynd hér á bókarkápu. Hann er að stofni til frá þjóðveldisöld. Allt þetta var síðar fært þjóðinni að gjöf og er nú varðveitt af Þjóðminjasafni og Skógasafni. Í þessari bók birtast Keldnagripir í nærfærnum teikningum alþýðulistakonunnar.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.