Tilraun um manninn # 63430

Regular
4.900 kr
Sale
4.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1970
Condition
Binding
Tilraun um manninn eftir Þorsteinn Gylfason.
Þorsteinn Gylfason (12. ágúst 1942 – 16. ágúst 2005 ) var íslenskur heimspekingur og prófessor við Háskóla Íslands. Hann fékkst einkum við stjórnmálaheimspeki, hugspeki og málspeki.

Þorsteinn brautskráðist frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1961 og hélt þaðan í nám til Bandaríkjanna. Hann lauk námi í heimspeki frá Harvard háskóla árið 1965 en stundaði framhaldsnám og rannsóknir í heimspeki við Magdalen College í Oxford háskóla á Bretlandi árin 1965-1971.
Þorsteinn kenndi heimspeki við Háskóla Íslands frá því að byrjað var að kenna þar heimspeki til B.A.-prófs. Hann hóf að kenna við skólann árið 1971, varð lektor árið 1973, dósent árið 1983 og prófessor árið 1989. Hann var mikill nýyrðasmiður og bjó til mörg orð sem notuð eru um heimspeki á íslensku. Þorsteinn var líka mikilvirkur þýðandi og þýddi fjölda heimspekiverka og ljóða. Hann hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1997 fyrir bók sína Að hugsa á íslenzku. Þorsteinn var sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu af Forseta Íslands árið 1994.

Þorsteinn stofnaði ritröðina Lærdómsrit Hins íslenzka bókmenntafélags og ritstýrði henni í 27 ár. Hann stofnaði einnig ritröðina Íslensk heimspeki (Philosophia Islandica) sem er einnig gefin út af Hinu íslenzka bókmenntafélagi. Þorsteinn var forstöðumaður Heimspekistofnunar Háskóla Íslands árin 1982-1991 og var kjörinn heiðursfélagi í Félagi áhugamanna um heimspeki á aðalfundi þess þann 17. mars 2004. Þakkarræðu Þorsteins má nálgast á Heimspekivef Háskóla Íslands. Í ræðunni fjallar Þorsteinn m.a. um heimspekiáhuga sinn frá bernsku.
Foreldrar Þorsteins voru Gylfi Þ. Gíslason, prófessor og ráðherra, og Guðrún Vilmundardóttir. Bræður Þorsteins voru Vilmundur Gylfason og Þorvaldur Gylfason, prófessor. Þorsteinn var ókvæntur og barnlaus.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.