Tómas Sæmundsson # 70422

Regular
6.900 kr
Sale
6.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1941
Condition
Binding
Tómas Sæmundsson. Æfiferill hans og æfistarf. Eftir Jón Helgason, dr. Theol. Biskup.
Tómas fæddist að Kúhól í Landeyjum 7.6. 1807, sonur Sæmundar Ögmundssonar, dbrm. í Eyvindarholti, og Guðrúnar Jónsdóttur.


Sæmundur var sonur séra Ögmundar, á Krossi, bróður séra Böðvars í Holtaþingum, föður séra Þorvaldar í Holti, forföður ýmissa menningarforkólfa, s.s. Vigdísar Finnbogadóttur, Matthíasar Johannessen og Gylfa Þ. Gíslasonar.


Kona Tómasar var Sigríður Þórðardóttir, sýslumanns í Garði Björnssonar og komust upp tvö börn þeirra, Þórhildur, kona Helga Hálfdánarsonar lektors, og Þórður, héraðslæknir á Akureyri.


Tómas lærði hjá Steingrími Jónssyni í Odda, síðar biskupi, lauk stúdentsprófi frá Bessastaðaskóla 1827, tók 2. lærdómspróf við Hafnarháskóla, lauk próf í hebresku 1831 og guðfræðiprófi 1832. Hann ferðaðist um Suður-Evrópu 1832-34 og stofnaði Fjölni, er hann kom til baka, ásamt Jónasi Hallgrímssyni, Brynjólfi Péturssyni og Konráð Gíslasyni.


Tómas fékk Breiðabólstað í Fljótshlíð 1834, varð prófastur Rangárþings 1836 og hélt Breiðabólstað til dánardags. Hann var líklega áhugasamastur og raunsæjastur um Fjölni, skrifaði mikið í ritið og gagnrýndi Konráð fyrir ofstæki í stafsetningarmálum og Jónas fyrir róttækni og harða gagnrýni á menn.


Tómas er, ásamt Baldvini Einarssyni, Jónasi og Jóni Sigurðssyni, helsta ættjarðar- og frelsishetja þjóðarinnar á 19. öld. Hans var sárt saknað er hann lést 17.5. 1841.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.