Tryggðarpantur # 64710

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2006
Condition
Binding
Tryggðarpantur. Skáldsaga eftir Auði Jónsdóttur.


Gísella Dal lifir fullkomnu lífi. Hún býr í stórri íbúð, er fastagestur á fínustu snyrtistofum, drekkur eðalvín og borðar exótískan mat, á milli þess sem hún skrifar stöku grein í tímarit, meira til gamans. En dag einn fær Gísella þær fréttir að ríkulegur arfur ömmu hennar sé uppurinn og að hugsanlega þurfi hún að fórna öllum sínum lífsstíl og fara að vinna fyrir sér. Þar til henni hugkvæmist að fá sér leigjendur …


Tryggðarpantur lýsir sambúð fjögurra kvenna í borg sem er full af fólki, innfæddum og aðkomumönnum. Þetta er áleitin og grátbrosleg saga þar sem teflt er saman ólíkum heimum og spurningum varpað fram um lífsgildi, lífsviðhorf – og lífsblekkingu.


Auður Jónsdóttir hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2005 fyrir skáldsögu sína, Fólkið í kjallaranum, sem var fagnað bæði af gagnrýnendum sem almennum lesendum og varð metsölubók. Hún var að auki tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og fékk frábæra dóma er hún kom út í Danmörku.


Tryggðarpantur var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.