Uppkast til forsagna um brúðkaupssiðu hér á landi # 81078

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Hafnarfirði
Date
1999
Condition
Binding
Uppkast til forsagna um brúðkaupssiðu hér á landi. Eftir Eggert Ólafsson. Þorfinnur Skúlason og Örn Hrafnkelsson bjuggu til prentunar.

Viðaukar: Brúðkaupssiðir er brúkaðir voru haustið 1767 þá vice-lögmaðurinn herra Eggert Ólafsson og hústrú Ingibjörg Guðmundsdóttir giftust - Kaupmáli Eggerts Ólafssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur. Björn Halldórsson skráði.
Eggert Ólafsson, náttúrufræðingur, varalögmaður og skáld skrifaði Uppkast til forsagna um brúðkaupssiðu hér á landi og er talið að hann hafi skrifað bókina árið 1757. Ritið var eins konar tilraun til að endurvekja glæsilegar og hefðarríkar brúðkaupsveislur og í henni setur hann fram hugmyndir um endurreisn brúðkaupa í anda miðalda. Eggert hélt sjálfur brúðkaup sitt með þeim hætti, þegar hann giftist Ingibjörgu Guðmundsdóttur frænku sinni haustið 1767. Brúðkaup var á þessum tíma nefnt brúðkaup aldarinnar, töluðu menn um að það hafi verið haldið að fornum stíl, með ríkmannalegu yfirbragði, fínum mat og drykkjum. Í bók sinni lýsir Eggert því nákvæmlega hvernig eigi að halda brúðkaup að heldri manna sið með tilheyrandi minnaflutningum, áti, drykk, dans, leik og söng. Eggert lést árið 1768, aðeins ári eftir brúðkaup sitt, og þessi tilraun til endurreisnar gamalla siða tókst ekki, gömlu siðirnir voru ekki teknir upp aftur og komust aldrei aftur í tísku.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.