Urðargaldur # 51402
- Regular
- 4.900 kr
- Sale
- 4.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Urðargaldur. Ljóð eftir Þorstein frá Hamri. Teikningar Guðrún Svava Svavarsdóttir
Úr Urðargaldri.
Um hríð var allt í mistri fyrir augum honum, velflestu hafði hann gleymt, tilvist hans stóð í stað, hann hímdi, dögum saman í sömu kúrunni innan um gár og gys – þangað til hann fór.
Þangað sem hann fór var ekki nema spölur, yfir mó, eða mel, eða einfaldlega fyrir horn, þar sem Hinn Ósýnilegi dregur hina hárréttu bláþráðarmiðju.
Nei! Geymum til dagseturs öll hin háspekilegu landamæri. Það að fara, fara sjálfur þennan spöl, þótt með örveikum burðum væri, lauk upp fyrir honum létti – fullvissu, ósnortinni af fyrirheitum og skrumi heimsins –
þeirri að þrátt fyrir brotinn væng og þrátt fyrir skort svo margs sem ella hefði gert honum kleift að hegða sér eins og fugl, var hann fugl – eða ef önnur dæmi eru uppi höfð: sú skepna sem hann var, – og sú ein.