Vafurlogar # 29806
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Vafurlogar. Ljóð eftir Pétur Jakobsson.
Í Morgunblaðinu 24. mars 1996 er birt viðtal við Pétur Jakobsson. (Viðtalið auðvitað gamalt þá það var birt 1996. Pétur lést 1958). En þar segir Pétur m.a.; -"Eitt sinn var ég ritstjóri," sagði Pétur. "Já og ábyrgðarmaður líka. Blaðið hét Láki og kom út 1919. - Svo var mál með vexti, að strákarnir komu til mín, Kiljan, Tómas, Sigurður Grímsson og einhverjir fleiri, og báðu mig um að ritstýra fyrir sig blaði. Ég komst ekki undan því, þó ég fengi ekkert fyrir þetta, en sem betur fór komu aðeins út tvö blöð af Láka. Enda var hann aldeilis ómerkilegur. Held að Kiljan og Siggi Gríms hafi aðallega skrifað í hann, en Tómas hafði ekki tíma til þess. Svo dó Láki dauða hinna réttlátu - og síðan hef ég aldrei verið ritstjóri. En nú er Láki "risinn upp", orðinn ófáanlegur og kominn í geipiverð - eins og þeir sem skrifuðu í hann á sínum tíma. - Annars er ég fyrsti kennari Kiljans og lagði að sjálfsögðu grundvöllinn að því að hann varð nóbelsverðlaunahöfundur. Ég kenndi þá í Mosfellssveit og þar bjuggu foreldrar hans í Laxnesi. Þegar Kiljan var hjá mér, var hann á 12. ári, en gerði svo góða stíla, að svaraði til tvítugs manns."