Valdimar Briem # 77017

Regular
6,900 kr
Sale
6,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Author
Location
Date
Condition
Binding
Valdimar Briem. Prentuð mynd af séra Valdimar Briem. Tilvalin í ramma.
Valdimar Briem (1. febrúar 1848 – 1930) var vígslubiskup á Stóra-Núpi í Gnúpverjahreppi.


Valdimar fæddist á Grund í Eyjafirði. Faðir hans var Ólafur Briem bóndi og smiður á Grund og móðir hans var Dómhildur Þorsteinsdóttir. Hann ólst upp í Hruna hjá Jóhanni Kristjáni Briem föðurbróður sínum sem jafnframt var prófastur í Hruna. Valdimari var veitt Hrepphólasókn árið 1873 en hún var sameinuð Stóra-Núpssókn sjö árum síðar. Þá settist Valdimar að þar. Hann var prófastur í Árnesprófastsdæmi 1896-1918. Þá var hann vígslubiskup frá 1909-1930.


Valdimar var mikið sálmaskáld og þýðandi og eru um 80 sálmar eftir hann í sálmabók Þjóðkirkjunnar. Einnig eru tíu sálmar eftir hann í færeysku sálmabókinni.


Eftir Valdimar liggja Biblíuljóð í 3 bindum, gefin út 1896 (Úr Gamla testamentinu), 1897 (Úr Nýja testamentinu) og 1898 (Davíðs sálmar).

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.