Valkyrjuáætlunin # 36744

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2008
Condition
Binding
Valkyrjuáætlunin. Eftir Jesús Hernández. Sigrún Á. Eiríksdóttir íslenskaði.
20. júlí 1944. Markmið: Að vega Hitler. Allt um samsærið sem hefði getað breytt sögu 20. aldarinnar.




Bók Jesús Hernández um hið fræga tilræði við Hitler fjallar um aðdraganda, þróun og afleiðingar valdaránstilraunarinnar. Tólf klukkustundir liðu frá því sprengjan sprakk og þar til samsærið var kæft á grimmdarlegan hátt.


Hernández, sem er blaðamaður og rithöfundur með háskólapróf í nútímasögu og upplýsingafræði, segir að gerð bókarinnar hafi krafist svipaðra rannsókna og stundaðar séu í leynilögreglusögum. Reyndar má segja að höfundurinn skrifi bókina eins og sakamálasögu og honum tekst á aðdáunarverðan hátt að gæða verk sitt stigmagnandi spennu. Sem er vissulega nokkurt afrek því allir vita að Hitler var ekki drepinn. Hernández er sá rithöfundur á Spáni sem mest hefur selt af bókum um seinni heimsstyrjöldina og hann leggur mikið upp úr því að skrifa aðgengilegan stíl og haga frásögninni þannig að lesandinn hafi ánægju af lestrinum. Þessi bók uppfyllir þau skilyrði af mikilli prýði, auk þess að segja frá dramatískum atburðum sem hljóta að snerta þá sem lesa um þá.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.