Verðandi # 90003

Regular
49.500 kr
Sale
49.500 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Author
Location
Kaupmannahöfn. Prentað hjá S. L. Möller, 1882.
Date
Condition
Binding

Verðandi. Útgefendur: Bertel E. Ó. Þorleifsson, Einar Hjörleifsson, Gestur Pálsson, Hannes Hafstein. Allt sem út kom. 
Gott eintak Verðanda. Kemur úr bókasafni Steindórs frá Hlöðum og prýðir bókmerki hans Verðanda.
Verðandi var íslenskt tímarit sem kom út í Kaupmannahöfn árið 1882 og er upphaf raunsæisstefnunnar á Íslandi miðað við útgáfu þess. Aðeins kom út eitt hefti af tímaritinu en það hafði þó mikil áhrif á íslenskar bókmenntir.
Útgefendur tímaritsins voru fjórir ungir menntamenn sem allir voru eða höfðu verið við nám í Danmörku. Þetta voru þeir Gestur Pálsson, Einar H. Kvaran, Bertel Þorleifsson og Hannes Hafstein, sem var yngstur fjórmenninganna, rétt rúmlega tvítugur. Gestur og Einar birtu smásögur í tímaritinu en Hannes og Bertel ljóð. Sum ljóð Hannesar sem þarna birtust í fyrsta sinn urðu alþekkt, svo sem Stormur, Skarphéðinn í brennunni, Nei, smáfríð er hún ekki, Sprettur (Ég berst á fáki fráum) og Þar sem háir hólar, en af öðru efni tímaritsins er smásaga Gests, Kærleiksheimilið, líklega þekktust.
Ekki var neinn sérstakur inngangur eða stefnuyfirlýsing í tímaritinu en þó varð strax ljóst að þarna var ný stefna á ferðinni sem ekki hafði áður sést í íslenskum bókmenntum. Voru fjórmenningarnir kenndir við tímaritið og kallaðir Verðandimenn.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.