Vígdrekar og vopnagnýr # 82963
- Regular
- 4,900 kr
- Sale
- 4,900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Vígdrekar og vopnagnýr. Hvalfjörður og hlutur Íslands í orrustunni um Atlantshafið. Eftir Friðþór Eydal.
Hver var hlutur herliðs og bækistöðva bandamanna á Íslandi í heimsstyrjöldinni síðari? Hvar voru þessar bækistöðvar og hvernig var vörnum þeirra og landsins alls háttað? Hvaða ráðum beittu Þjóðverjar gegn þeim og hver voru umsvif þeirra hér við land? Hvers vegna réðust þýskir kafbátaforingjar á skip Íslendinga sem töldu sig hlutlausa? Þessum spurningum og mörgum fleiri er varpað fram í bókinni.
Í Hvalfirði reistu Bandaríkjamenn olíubirgðastöð fyrir Breta á láns- og leigukjörum. Smíði stöðvarinnar kostaði jafnvirði fjórðungs af landsframleiðslu Íslendinga árið 1941.
Aukin umsvif kröfðust varna gegn þýskum sprengjuflugvélum. Loftvarnarbyssum var komið fyrir á nokkrum stöðum í Hvalfirði og víðar og ratstjárstöðvar og orrustuflugvélar önnuðust loftvarnir. Fyrsta flugvélin sem Bandaríkjaher grandaði í Evrópu var skotin niður undan Gróttu og hér tóku þeir fyrsta þýska flugliðann sem þeir handsömuðu í styrjöldinni.
Fjöldi ljósmynda er í bókinni.