Vínlandsgátan # 78261
- Regular
- 4.900 kr
- Sale
- 4.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Vínlandsgátan. Eftir Pál Bergþórsson.
Vínlandsgátan fjallar um landafundi norrænna manna í Vesturheimi um árið 1000, og þá aðallega Leifs heppna, Þorvalds Eiríkssonar og Þorfinns karlsefnis. Höfundurinn, Páll Bergþórsson, leggur Vínlandssögurnar, Grænlendinga sögu og Eiríks sögu rauða, til grundvallar, rekur Vínlandssögurnar áfanga eftir áfanga og kortleggur leiðir manna og dvalarstaði. Lýsingar sagnanna eru bornar saman við þá þekkingu sem afla má á annan hátt um siglingatækni fornmanna, staðhætti, loftslag, gróður og dýralíf í Vesturheimi og þjóðhætti indíána og ínúíta.
Í kynningu segir: "Páll hefur ekki látið þar við sitja í leit sinni að lausn Vínlandsgátunnar. Sjálfur lagði hann land undir fót í tengslum við rannsóknir sínar, kannaði staðhætti vestanhafs og fann meðal annars villtan vínvið og sjálfsáið hveiti eða villirís." Í bókinni eru m.a. birt dagbókarbrot og ljósmyndir úr þeirri ferð hans.