Ævintýrið um Marel # 77849

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2023
Condition
Binding
Ævintýrið um Marel. Sprotafyrirtækið 1983-1999. Eftir Gunnar Þór Bjarnason.


Marel hf. var stofnað í mars 1983 og fyrstu vikurnar störfuðu tveir menn hjá fyrirtækinu. Vorið 2023 var fjöldi starfsfólks um átta þúsund í meira en 30 löndum. Á 40 árum hafði Marel breyst úr sprotafyrirtæki, sem einsetti sér að beita nýjustu tækni til að bæta hráefnisnýtingu í sjávarútvegi, í hátæknirisa sem framleiddir tæki fyrir margar greinar matvælaiðnaðar.


Hvernig tókst litlu fyrirtæki á Íslandi, þar sem engin hefð var fyrir framleiðslu og útflutningi á hátæknivörum, að ná þessum árangri, koma ár sinni fyrir borð á alþjóðavettvangi og sigla fram úr keppinautum? Hér er sagan rakin fram og til ársloka 1999 þegar Marel var orðið kröftugt alþjóðafyrirtæki. Ýmsar hindranir urðu á veginum og um tíma blasti ekkert við annað en gjaldþrot.


Saga Marel er sannarlega ævintýri líkust og felur í sér dýrmætan lærdóm fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæku, í raun alla sem láta sig tækniþróun og nýsköpun nokkru varða. Um leið speglar hún þjóðlíf og tíðaranda og veitir ómetanlega innsýn í atvinnu- og efnahagsþróun síðustu áratuga á Íslandi, sjávarútveg, fjármálalíf, alþjóðaviðskipti og stjórnmál.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.