Ævisaga þorsksins # 82983

Regular
4.900 kr
Sale
4.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1998
Condition
Binding
Ævisaga þorsksins. Fiskurinn sem breytti heiminum. Eftir Mark Kurlansky. Ólafur Hannibalsson íslenskaði.
Höfundur bókarinnar, Mark Kurlansky, var árum saman til sjós á fiskibátum. Hann skrifar Ævisögu þorskisns frá sjónarmiði fiskimanna við Atlantshaf. Verulegur hluti bókarinnar fjallar um Ísland og gerir höfundurinn grein fyrir þýðingu þorskveiða hér við land allt frá landnámsöld til núverandi stöðu mála. Hann ræðir við sjómenn, útgerðarmenn, vísindamenn og stjórnmálamenn og tekst að skrifa bók sem heldur lesandanum föngnum og um þorskinn sjálfan skrifar hann af fágætri þekkingu og yfirsýn. Vegna þorsksins hafa stríð verið háð og byltingar brotizt út. Heilar þjóðir hafa byggt lífsafkomu sína á honum og þjóðlega rétti, hagkerfi hafa risið og riðað til falls, lönd og höf hafa verið könnuð. Til dæmis var landnám Norður-Ameríku byggt á tilvist þorsksins. Höfundurinn rekur þessa sögu allt frá því að Baskar stigu fram úr blámóðu aldanna fyrir nær þúsund árum með hina miklu uppgötvun sína, söltun á þorski til að tryggja geymsluþol og koma með matvöru sem framleytti fólki yfir vetrartímann. Hann lýsir víkingunum sem eltu þorskinn þvert þvert yfir Atlantshafið, þurrkuðu hann og hertu og höfðu sér til lífsviðurværis á landkönnunarferðum sínum. Hann segir frá því hvernig þorskurinn, saltaður og hertur, varð fiskur kaþólsku kirkjunnar og spyrtur saman við örlög kristninnar og hvernig hann gekk í endurnýjun lífdaga með Clarence Birdseye , sem byggði upp iðnað á frystum þorski eftir 1930.

Email me when this is available

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.